11. júní kl. 12:00

Næstu fimm fimmtudaga frá 28. maí til 25. júní stendur R&G fyrir fyrirlestraröð um Ungt fólk rannsóknirnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Fyrirlestrunum verður streymt á netinu frá HR.
Dr. Ingibjörg Eva Þórisdóttir, sérfræðingur hjá R&G, mun fara yfir nýjungar á vef Rannsókna og greiningar sem ber heitið Lykiltölur í lífi barna. Um er að ræða opinn landsaðgang að nýjustu rannsóknum R&G, Ungt fólk 2020. En þar geta notendur nú fengið greinargott yfirlit yfir stöðu ýmissa þátta í lífi og umhverfi barna og ungmenna eins og hún var í febrúar síðastliðnum. Ingibjörg mun veita innsýn í notkun vefsins, hvernig hægt er að skoða niðurstöður fyrir landið í heild og vista upplýsingar af síðunni svo fátt eitt sé nefnt.
© Rannsóknir og greining ehf. – Lágmúla 6, 108 Reykjavík