Nýtt samstarf markar tímamót
Rannsóknir og greining (R&G) hafa undirritað tímamóta samstarfssamning við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og mennta- og barnamálaráðuneytið um þróun, úrvinnslu og miðlun niðurstaðna úr grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Með samningnum hefst nýr og metnaðarfullur kafli í starfi R&G.
Samningurinn markar tímamót og styrkir samstarf lykilaðila á sviði gagna, greiningar og hagnýtrar þekkingar um börn og ungmenni á Íslandi. Hann felur meðal annars í sér að fulltrúar R&G taki þátt í stýrihópi rannsóknarinnar og leiði vinnu við þróun þjónustu sem byggir á niðurstöðum hennar.
Sérstök áhersla verður lögð á úrvinnslu, miðlun og framsetningu gagna, svo þau nýtist betur til ákvarðanatöku, umbóta og þróunar í samstarfi við hagaðila um land allt. Sú vinna byggir á áratuga reynslu R&G af samstarfi við skóla, sveitarfélög og aðra á vettvangi og er hluti af þeirri þekkingaruppbyggingu sem íslenska módelið í forvörnum byggir á.
„Með þessu samstarfi hefst nýr kafli í starfi R&G, en um leið erum við að sameina krafta okkar um það sem mestu varðar. Ef eitthvað á að vera sameiginlegt verkefni okkar allra, þá eru það hagsmunir barna og ungmenna,“ segir Inga Dóra Sigfúsdóttir, stofnandi R&G og íslenska forvarnarmódelsins.
Frá árinu 1999 hafa Rannsóknir og greining byggt upp öfluga þekkingu á stöðu barna og ungmenna á Íslandi með gagnaöflun, greiningu, rannsóknum og nánu samstarfi við vettvang. Með nýju samstarfi verður sá grunnur nýttur af enn meiri krafti, með það að markmiði að gera gögn skýrari, aðgengilegri og nýtanlegri fyrir þau sem vinna með börnum og ungmennum á hverjum degi.
Lesa má ítarlegri umfjöllun um samstarfið á vef Stjórnarráðsins..